um okkur

VISJONER er ráðgjafarfyrirtæki stofnað haustið 2024 af Vigdísi Louise Jónsdóttur Jarðfræðingi og Ingvari Baldurssyni Bygginarverkfræðingi. VISJONER leggur metnað í að veita öfluga og skilvirka sérfræðiráðgjöf til viðskiptavina okkar með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi. 


Starfsmenn VISJONER eru með yfir 20 ára reynslu úr ýmsum verkefnum, stórum sem smáum, á Íslandi, Danmörku, Noregi o.fl. Starfsmenn VISJONER hafa sinnt margvíslegum hlutverkum sitt hvoru megin borðsins bæði sem ráðgjafar, hönnuðir, verktakar, eftirlitsaðilar og einnig í hlutverki verkkaupanda.


Grunngildi VISJONER eru:


Framsýni

  • VISJONER leitast við að vera framsýn í þeirri ráðgjöf sem við veitum og sjá fyrir möguleg tækifæri sem og áskoranir framtíðarinnar til hagsbóta fyrir samfélagið.


Metnaður

  • VISJONER leggur metnað í að veita góða þjónustu með þarfir viðskiptavinarins að leiðarljósi.


Skilvirkni

  • VISJONER  leggur áherslu á skilvirkni til að hámarka framleiðni í hverju verkefni fyrir sig sem skilar sér til viðskiptavina okkar.
 
 

Fréttir

Heimasíða VISJONER er komin í loftið og við erum tilbúin að fara út með fréttirnar og auglýsa okkur. Ef þig vantar einhverja aðstoð eða ráðgjöf endilega kíktu á hvaða þjónustu við getum boðið upp á, haft samband við okkur í síma, eða sendu okkur línu og við finnum tíma fyrir spjall.